Fiskeldi

Fiskeldi

Fiskeldi - akureyriFiskistofa gefur út rekstrarleyfi í fiskeldi, hefur eftirlit með að starfsemi eldisstöðva sé í samræmi við rekstrarleyfi og safnar skýrslum um framleiðslu í fiskeldi.

Eftirlit með heilbrigði fiska og heilnæmi eldisafurða er hins vegar á hendi Matvælastofnunar og eftirlit með starfsleyfum fiskeldisstöðva hjá heilbrigðisnefndum sveitafélaga eða Umhverfisstofnun eftir því sem við á. Sótt er um rekstrarleyfi til Fiskistofu. Í eyðublaði fyrir umsókn um rekstrarleyfi er að finna allar upplýsingar um þau gögn sem þurfa að fylgja umsókninni.

Fiskeldisdeild Fiskistofu fjallar um umsóknir um rekstrarleyfi fyrir fiskeldi eftir að hafa leitað umsagna hjá Matvælastofnun, Veiðimálastofnun, Hafrannsóknastofnun og viðkomandi sveitarfélagi eftir atvikum. Fiskveiðistjórnunarsvið Fiskistofu hefur eftirlit með eldisstöðvum en heimilt er að fela aðilum, sem hlotið hafa faggildingu, að annast slíkt eftirlit.

Rekstrarleyfishafi skal jafnframt gefa Fiskistofu upplýsingar um sína starfsemi, svo sem framleiðslumagn og fóðurnotkun. Lax- og silungsveiðisvið Fiskistofu kemur sérstaklega að fiskeldismálum þegar um er að ræða slys, umsagnir eða beiðnir um leyfisveitingar, sem ætla má að geti haft neikvæð áhrif á náttúrulega stofna laxfiska.
Hér er listi yfir rekstrarleyfisnúmer fiskeldisfyrirtækja.

Slátrun á eldisþorski

Tilkynningar um slátrun á eldisþorski skulu sendar á póstfangið: thorskeldi@fiskistofa.is




Tungumál síðu


Leita á vefnum



laxogsil-nordura05-2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica