Rekstrarleyfi fiskeldis
Rekstrarleyfi til fiskeldis
Fiskistofa gefur út rekstrarleyfi til fiskeldis, hefur eftirlit með að starfsemi eldisstöðva sé í samræmi við rekstrarleyfi og safnar skýrslum um framleiðslu í fiskeldi. Á vef þessum má finna rekstrarleyfi í gildi eftir landshlutum.
Ný lög um skeldýrarækt
Þann 1. júlí 2011 tóku gildi lög nr. 90/2011 um skeldýrarækt. Með gildistöku laganna fluttist útgáfa rekstrarleyfa vegna skeldýraræktar frá Fiskistofu til Matvælastofnunar. Þau rekstrarleyfi sem Fiskistofa gaf út fyrir gildistöku laganna verða birt á þessum vef.

