Strandveiðar
Strandveiðar
Móttaka umsókna um strandveiðileyfi er hafin. Slóð á rafrænt umsóknarkerfi Fiskistofu má finna í gráa kassanum hér til hægri á skjánum.
Á tímabilinu maí, júní, júlí og ágúst er heimilt að veiða á handfæri allt að 6.000 lestir af óslægðum botnfiski á sk. strandveiðum. Sá afli reiknast ekki til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda veiðarnar. Fái fiskiskip leyfi til strandveiða, falla úr gildi önnur veiðileyfi sem skipið kann að hafa innan íslenskrar lögsögu. Þó getur fiskiskip ekki stundað strandveiðar ef flutt hefur verið meira aflamark, í þorskígildum talið, frá skipi en flutt hefur verið til þess. Ákveðin skilyrði eru bundin í leyfi til strandveiða:
- Ekki er heimilt að stunda veiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum eða á lögbundnum frídögum.
- Ekki má veita fiskiskipi leyfi til strandveiða hafi aflamark, í þorskígildum talið, verið flutt af því umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á sama fiskveiðiári.
- Veiðiferð má ekki standa lengur en í 14 klst. og eingöngu er heimilt að ljúka einni veiðiferð á sólarhring.
- Skipstjóri skal tilkynna um upphaf og lok veiðiferðar um næstu strandstöð. Skylda er að vera með sjálfvirkan staðsetningarbúnað um borð.
- Hámarksfjöldi handfærarúlla um borð eru 4 og ekki er heimilt að hafa önnur veiðarfæri um borð.
- Eingöngu er heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð og skal öllum afla landað í lok veiðiferðar og hann vigtaður endanlega á Íslandi. Þorskígildi miðast við slægðan fisk.
Landinu er skipt í fjögur veiðisvæði. Leyfi til strandveiða eru veitt á því svæði þar sem heimilisfesti útgerðaraðila viðkomandi báts er skráð og eingöngu er heimilt að landa afla innan þess landsvæðis á veiðitímabilinu. Aflamagn er háð takmörkunum fyrir hvert landsvæði innan hvers mánaðar. Sé heimildin ekki fullnýtt flyst heimildin á milli mánaða, allt til ágústloka. Í reglugerð um strandveiðar árið 2011 er veiðisvæðum og magni á hverjum tímabili skipt svo eftir breytingu á reglugerðinni sem gerð var 24. júní:
- Svæði A: Eyja- og Miklaholtshreppur til Súðavíkurhrepps. Í hlut þess koma 499 tonn í maí, 877 tonn í júní, 877 tonn í júlí og 577 tonn í ágúst.
- Svæði B: Strandabyggð til Grýtubakkahrepps. Í hlut þess koma 355 tonn í maí, 623 tonn í júní, 623 tonn í júlí og 410 tonn í ágúst.
- Svæði C: Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps. Í hlut þess koma 231 tonn í maí, 520 tonn í júní, 751 tonn í júlí og 674 tonn í ágúst.
- Svæði D: Sveitarfélagið Hornafjörður til Borgarbyggðar. Í hlut þess koma 419 tonn í maí, 511 tonn í júní, 302 tonn í júlí og 250 tonn í ágúst.
Tilkynning Fiskistofu frá 14. apríl 2011 til þeirra sem hyggjast stunda strandveiðar .

