Fyrirspurnatorg
Fyrirspurnatorg
Hér er búið að taka saman öll þau gagnvirku form sem er að finna á vef Fiskistofu, þ.e. fyrirspurnir sem sækja gögn beint í grunna stofnunarinnar, auk þess að setja inn lýsingu á helstu virkni hvers og eins. Formin er jafnframt að finna á viðeigandi stað í leiðarkerfi vefjarins. Þær fyrirspurnir sem taka á ólíkum málaflokkum geta komið nokkrum sinnum fram í töflunni.
| Fyrirspurnir um einstök skip eða aðila | Lýsing |
|---|---|
| Leitað að skipi |
Leitað eftir skipa nr. eða nafni. Niðurstöður eru upplýsingar um eiganda og rekstraraðila skips, stærð, heimahöfn o.fl. |
| Öll skip útgerðar | Kennitala eða nafn útgerðar slegin inn. Listi sýnir öll skráð skip með veiðiheimildir hjá útgerðinni. |
| Heimahafnir | Valin höfn og niðurstöður sýna öll skip með veiðiheimildir sem eiga heimahöfn á þeim staðinn sem valinn var. |
| Landanir | Valið er skip, til hægri á skjánum kemur kassi með valmöguleikum. Velja landanir og allar landanir skipsins á umbeðnu fiskveiðiári birtast. Sé smellt á löndun má sjá sundurliðaðar upplýsingar um afla, höfn, veiðarfæri og fl. |
| Afli og heimildir eftir útgerð/úteiganda | Gefur gott yfirlit yfir aflaheimildir og nýtingu þeirra hjá því fyrirtæki sem valið er. Niðurstöður sýna aflamarksstöðu, afla o.fl. hjá aðilanum þegar litið er til allra skipa útgerðarinnar, eða þeirra skipa sem valin voru. |
| Þorskígildisstuðlar | Yfirlit yfir þorskígildisstuðla eftir tegundum á völdu fimm ára tímabili. |
| Veiðiskylda | Skip valið, farið í aflamark og fyrir miðju ofarlega valið "veiðiskylda" og veiðiskylda skipsins birtist. |
| Framsalsheimild | Skip valið, farið í aflamark og fyrir miðju ofarlega valið "framsalsheimild" sem sýnir hana fyrir valið tímabil. |
| Yfirlit yfir VS-afla | Skip valið, farið í aflamark og fyrir miðju ofarlega valið "VS-aflayfirlit" sem sýnir VS afla fyrir valið tímabil. |
| Fyrirspurnir tengdar aflaheimildum | Lýsing |
|---|---|
| Hægt er að velja á milli allra kvótategunda og fá lista yfir öll skip sem eru með aflahlutdeild í valinni tegund. Niðurstöður sýna hlutdeild hvers skips sem hlutfall og hvort að hlutdeild hefur verið flutt til eða frá einstöku skipum. | |
| Aflahlutdeild eins skips | Allar hlutdeildir sem bundnar eru við eitt skip. Velja skipið og ofarlega til hægri á skánum "Aflahlutdeild". |
| Aflahlutdeildarfærslur eins skips | Yfirlit yfir allar millifærslur á aflahlutdeild til og frá völdi skipi. Sé smellt á færsluna má sjá upplýsingar tegund og magn auk skipsins sem flutt var frá eða til. Velja skipið sem sóst er eftir og ofarlega til hægri á skjánum "Aflahlutdeildarfærslur". |
| Aflamarksviðskipti | Samantekt með upplýsingum um viðskipti með aflamark eftir fisktegundum og dögum. Nýjasti dagur er sjálfvalinn en hægt er að skoða eldri samantektir og fá upplýsingar um fjölda færslna, magn, meðalverð, lægsta og hæsta verð og heildarverðmæti dagsins. Með því að smella á fisktegund birtast upplýsingar sundurliðaðar eftir hverri færslu. |
| Aflamarksviðiskipti eins skips | Yfirlit yfir allar millifærslur á aflamarki til og frá völdi skipi. Sé smellt á færsluna má sjá upplýsingar tegund og magn auk skipsins sem flutt var frá eða til. Velja skipið sem sóst er eftir og ofarlega til hægri á skjánum "Aflamarksfærslur". |
| Heildaraflamarksstaða | Upplýsingar um úthlutað aflamark allra kvótategunda, tilfærslu aflaheimilla á milli fiskveiðitímabila, notkun á tegundatilfærslu, heildarafla til aflamarks, umframafla o.fl. Hægt er að sækja upplýsingar um heildarstöðu innan lögsögu (fiskveiðiárstegundir), sundurliðað eftir aflamarki eða krókaaflamarki eða úthafsveiðum. |
| Heildaraflamarksstaða eins skips | Sama og að ofan nema tiltekið skip er valið og ofarlega til hægri skjánum valið "aflamark". Niðurstöður sýna ýmsar upplýsingar um heimildir og afla valda skipsins. |
| Sérstakar úthlutanir | Tengingin vísar í heildarstöðumyndina en valinn er grár hnappur ofan við hana "sérstakar úthlutanir". Þarna má sjá úthlutanir s.k. jöfnunaraðgerða og annars sundurliðað eftir tegund t.d. byggðakvóti, frístundakvóti, skel- og rækjubætur, rannsóknakvóti, þorskeldiskvóti og annars sem kann að eiga við hverju sinni. |
| Heimildir til skipa í makríl | Makrílaflaheimildir eftir skipum og færslur heimilda til eða frá skipi. Hægt að sundurliða eftir flokkun heimilda til skipa. |
| Fyrirspurnir tengdar afla | Lýsing |
|---|---|
| Aflastöðulisti | Hægt er að velja á milli allra kvótategunda og fá lista yfir afla einstakra skipa í þeirri tegund sem valin var á völdu fiskveiðiári. Niðurstöður sýna úthlutun aflamarks (og bóta) til allra skipa og öll skip sem landað hafa afla í tegundinni auk tilfærslu aflamarks til eða frá einstökum skipum. Eingöngu kvótategundir. |
| Afli í línuívilnun | Sundurliðun eftir fisktegund og tímabilum í línuívilnun, viðmiðunarafli sem er til ráðstöfunar á hverju tímabili og magn veitt upp í hann. |
| Afli í makríl | Upplýsingar um aflaheimildir og afla í makríl eftir skipum. Hægt að sundurliða eftir flokkun heimilda til skipa. |
| Afli í strandveiðum | Upplýsingar um heildarafla í strandveiðum og fjölda landana. Hægt að skoða eftir svæðum og tímabilum. |
| Afli eftir höfnum | Valið er tímabil sem sóst er eftir. Niðurstöður sýna afla allra tegunda eða helstu tegunda, eftir því hvort er valið, eftir fisktegundum og höfnum. |
| Afli eftir mánuðum | Valið er tímabil sem sóst er eftir. Heildarafli eftir fisktegundum og mánuðum. |
| Afli eftir útgerðarflokkum | Valið er tímabil sem sóst er eftir. Niðurstöður sýna afla eftir tegundum skipt á útgerðarflokka, miðað við útgerðaflokkaskráningu Fiskistofu. |
| Afli einstakra tegunda | Valið er tímabil (opið val) og fisktegund. Niðurstöður sýna afla í tegundinni sundurliðaðann á veiðiskip. |
| Heildaraflastaða - sundurliðuð eftir aflamarkskerfum | Heildarstöðumynd yfir afla og heimildir kvótategunda. Hér má sjá heildarafla og aflastöðu hverrar kvótategundar. Hægt er að sækja upplýsingar um heildarstöðu innan lögsögu (fiskveiðiárstegundir), sundurliðað eftir aflamarki eða krókaaflamarki eða úthafsveiðum. |
| Landanir eftir höfnum | Hér er hægt að velja einstaka höfn og tímabil og fá upp landanir skipa í höfninni á tímabilinu, ýmist er aflinn gefinn upp í einni tölu eða sundurliðað eftir tegundum. Hægt er að sækja þessar upplýsingar sem Excel-skjal. |
| VS-afli | Yfirlit yfir VS-afla valins fiskveiðiárs brotið niður á ársfjórðunga og helstur fisktegundir. |

