Aflasamsetning á grásleppuveiðum 2019
Fiskistofa birtir hér upplýsingar um aflasamsetningu í grásleppuveiði hjá grásleppubátum nú á fyrra helmingi aprílmánaðar. Eins og boðað hveufur verið eru þeir bátar sem eftirlitsmenn réru með og upplýsingar eru birtar um tilgreindir í meðfylgjandi gögnum.
Það er m.a. hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að ekki komi til brottkasts. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir Fiskistofa margvíslegum aðferðum og má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og skipstjórnarmenn, áhættugreiningu og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar og afla. Þannig telur Fiskistofa að hún ræki hlutverk sitt að gæta hagsmuna þjóðarinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafs og vatna.
Ástæður
breytilegrar aflasamsetningar geta verið margvíslegar. Aðstæður í hafinu geta
verið ólíkar hverju sinni og ætlun útgerðar og skipstjórnarmanna getur verið
mismunandi frá einni veiðiferð til annarrar.
Fiskistofa
birtir hér niðurstöður um magn og fjölda fisktegunda í veiðiferðum
grásleppubáta
í fyrri hluta apríl. Birtar eru upplýsingar um landaðan afla í tveimur veiðiferðum sama báts á
undan og á eftir ferðinni með
eftirlitsmanninum að því gefnu að farnar hafi verið tvær fyrri
veiðiferðir.
Hér er að finna upplýsingar um aflasamsetningu
16 grásleppubáta í apríl 2019
Myndin hér að neðan sýnir sem dæmi aflasamsetningu
eins grásleppubáts.
Allar aflatölur eru í kg upp úr sjó.