Lágmörkum umframafla í strandveiðum
Eins og flestir vita má ekki veiða meira en sem samsvarar 650 kg, í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð á strandveiðum. Á undanförnum árum hefur borið á því að nokkuð er um að menn veiði umfram þetta hámark. Endurgreiða þarf andvirði umframaflans í ríkissjóð en sá afli sem um ræðir dregst engu að síður frá þeim afla sem er til skiptanna á veiðunum. Fyrir vikið runnu tæpar 40 milljónir króna í ríkissjóð í fyrra sem ella hefðu farið í vasa strandveiðimanna. Fiskistofa hvetur strandveiðimenn til að gæta sem best að því að veiða ekki umframafla. Í sumar verður tekið upp það nýmæli að listi yfir þá báta sem veiða mest umfram verður birtur í hverjum mánuði á vef Fiskistofu.