Þrjár svæðalokanir í kjölfar eftirlits á grunnslóð
Fikt frétt
Fiskistofa, í samvinnu við Landhelgisgæsluna, var í eftirlitsleiðangri á grunnslóð 12. til 23. ágúst s.l. Betur hefði mátt viðra á leiðangursmenn en ekki var fært á sjó vegna veðurs í 3 daga.
Í leiðangrinum var farið um borð í 20 báta; 9 handfærabáta, 9 línubáta og 2 netabáta. Veiðileyfi og afladagbækur allra voru skoðuð. Gerð var skýrsla vegna meints brots á skráningum í afladagbók um borð í einum báti. Afli var jafnframt mældur um borð í flestum þeirra báta sem heimsóttir voru og veiðarfæri skoðuð. Það kom í ljós að hlutfall smáfisks af afla var í einhverjum tilvikum undir viðmiðunarmörkum og leiddi þetta til þriggja skyndilokana á veiðisvæðum til tveggja vikna (skyndilokanir nr. 74, 75 og 76).
Eftirlitsmenn Fiskistofu framkvæma lengdarmælingar á afla. Komi í ljós að afli af þeim veiðisvæðum sem verið er að mæla af er undir settum viðmiðunarmörkum gerir Fiskistofa tillögur um lokun veiðisvæða til Hafrannsóknarstofnunar sem tekur endanlega ákvörðun um lokun svæða.

