Fréttir

Veiðar erlendra skipa í íslenskri lögsögu - aflinn í júlí 2009

27.8.2009

Mjög rólegt var yfir veiðum erlendra skipa í íslenskri lögsögu í júlí mánuði. Tvö færeysk skip voru á línuveiðum og var heildaraflinn rúmlega 102 tonn. Eins og undanfarna mánuði var mest um ufsa í aflanum eða 44 tonn og keiluaflinn rúm 36 tonn. Þorskaflinn var aðeins rúmlega 4 tonn. Ennfremur tilkynntu færeysk skip um 170 tonna síldarafla úr lögsögunni.

Botnfiskafli færeyskra skipa í lögsögunni fyrstu sjö mánuði ársins er kominn upp í 1.697 tonn sem er nokkuð minni afli en á sama tíma í fyrra þegar hann var 2.296 tonn. Færeysk skip hafa nú nýtt tæplega 33% af þeim aflaheimildum sem þau hafa til ráðstöfunar í botnfiski á Íslandsmiðum.

Eitt grænlenskt skip var hér á karfaveiðum í júlí. Tilkynntur afli til Landhelgisgæslunnar var 522 tonn.

Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér.

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica