Úthlutun á aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2009/2010
Alls var úthlutað 259.797 tonnum í þorskígildum talið og er það tæplega 2,8% aukning í magni í þorskígildum talið frá 2008. Alls fengu 788 skip úthlutað aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar, þar af eru 456 skip í krókaaflamarkskerfinu.
Þetta er 21 skipi fleira en á síðasta fiskveiðiári og er aukningin í fjölgun skipa í krókaaflmarki. Hæst hlutfall úthlutaðs aflamarks fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík. Þar á eftir til skipa með heimahöfn í Vestmannaeyjum, eins og á síðasta fiskveiðiári. HB Grandi hf. og Brim hf. eru, líkt og í fyrra, með hæst hlutfall af úthlutuðu aflamarki á skipum sem eru í þeirra rekstri. Ítarlegar upplýsingar um úthlutun aflamarks eftir skipum, fyrirtækjum, heimahöfn, útgerðarflokkum og fleira er að finna á vef Fiskistofu, sjá hér. Jafnframt er þarna að finna upplýsingar eftir skipum um sérstaka úthlutun til 52 skipa sem fá úthlutað aflamarki í þorski, ýsu, ufsa og steinbít vegna skerðingar í leyfilegum heildarafla í hörpudisk og innfjarðarækju, sbr. reglugerð nr. 675/2009 um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta.

