Fréttir
Nýjustu aflatölur í úthafskarfaveiðum í síldarsmugunni
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu NEAFC (Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni) var búið að veiða 2.310 tonn af úthafskarfa síldarsmugu þann 7. september s.l. Þetta er 22% af umsömdum sameiginlegum 10.500 tonna kvóta aðildaþjóða NEAFC.
Þrjú íslensk skip hafa fengið leyfi til þessara veiða og samkvæmt upplýsingum Fiskistofu hafa þau ekki haldið til veiða.

