Fréttir
74% af heimildum í norsk íslenskri síld nýttar
Líkt og í júlí mánuði fóru veiðar íslenskra skipa úr deilistofnum einungis fram í íslenskri lögsögu í nýliðnum mánuði. Síldaraflinn var mikill í ágúst eða rúmlega 63 þúsund tonn sem er mesti mánaðarafli íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum síðan í júní mánuði árið 2000. Þá veiddu íslensk skip tæplega 163 þúsund tonn þar af tæplega 125 þúsund tonn úr lögsögu Jan Mayen.
Heildarafli íslenskra skip í norsk-íslenskri síld fyrstu átta mánuði ársins var kominn í 186.291 tonn, þar af 1.206 tonn úr norskri lögsögu. Þetta er um 20% meiri afli en á sama tíma í fyrra en þá var aflinn kominn uppí 147.558 tonn. Heildaraflamark íslenskra skipa á yfirstandandi ári er 250.431 tonn þannig að íslensk skip höfðu í lok ágúst nýtt rúmlega 74% af kvótanum, en eiga enn eftir bróðurpart af veiðiheimildum í norsk íslenskri síld í norskri lögsögu.
Makrílaflinn í ágúst var 13.531 tonn og kolmunnaaflinn var 927 tonn. Fyrstu átta mánuði ársins er makrílaflinn orðinn 111.385 tonn sem er svipaður heildarafli og á sama tíma í fyrra.
Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.

