Fréttir

Nýting aflaheimilda í ágúst 2009

29.9.2009

Afli íslenskra skipa í botnfiski var 36.623 tonn í ágúst. Mest var um ýsu í aflanum eða 8.787 tonn og þorskur var 8.149 tonn. Nú þegar fiskveiðiárið er liðið er 4,6% af því aflamarki sem var til ráðstöfunar í þorski ónýtt, Aflamarksskip eiga 4% ónýtt og krókaaflamarksskip 7,2%. Þetta er áþekkt því sem var við lok fiskveiðársins 2007/08 en þá höfðu krókaaflamarksskip 5,6% af aflamarki í þorski ónýtt og aflamarksskip 4,4%.

Aflamark var einnig vannýtt í fjölmörgum öðrum kvótategundum. Helst má nefna ýsu uppá 15,2%, í ufsa uppá rúm 20% og grálúðu uppá 12,7%. Aðrar vannýttar kvótategundir eru meðal annars allar þær flatfisktegundir sem eru kvótabundnar nema þykkvalúra.

Úthlutað aflamark í keilu, löngu, steinbít og skötusel var fullnýtt á nýliðnu fiskveiðiári. Heildaraflamarki í þorskígildum talið fyrir fiskveiðiárið 2008/09 var 312.914 tonn og voru nýttar aflaheimildir 290.112 tonn. Eru því 22.802 tonn eða 7,3% aflaheimilda vannýtt frá síðasta fiskveiðiári.

Frekar upplýsingar um afla og nýtingu aflaheimilda í ágúst er að finna á meðfylgjandi síðu.

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner5
Þetta vefsvæði byggir á Eplica