Velkomin/n á nýjan vef Fiskistofu!
Þann 30. september opnaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, formlega nýjan vef Fiskistofu. Fiskistofa hefur verið leiðandi í notkun gagnagrunna og birtingu upplýsinga á vefsíðum sínum allt frá haustinu 1993. Þetta nýja vefkerfi gerir stofnuninni enn frekar kleift að þróast frekar í rafrænni stjórnsýslu og er markmiðið enn sem áður að þjónusta viðskiptamenn eins og helst er
kostur rafrænt, með miðlun upplýsinga á vefnum.
Vefurinn er enn í þróun og mun smá saman bætast við efni á hann. Fyrst um sinn verður mögulegt að skipta yfir á eldri vefsíður Fiskistofu fyrir þá sem það kjósa frekar.

