Fréttir

Veiðar erlendra skipa í íslenskri lögsögu – aflinn í september 2009

8.10.2009

Átta færeysk skip voru á veiðum innan íslensku lögsögunnar í september. Heildarafli skipanna var 519 tonn. Mest var um keilu í aflanum eða 149 tonn og langa var 132 tonn. Þorskaflinn var 121 tonn og hafa færeysk skip veitt það sem af er árinu 529 tonn af þorski en heimild færeyskra skipa á árinu er 1.200 tonn. Færeyingarnir hafa því aðeins nýtt 44% af aflaheimildunum sínum í þorski í íslenskri lögsögu.

Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa það sem af er árs er nú 2.679 tonn sem eru tæp 54% af leyfilegum heildbotnfiskafla þeirra. Á sama tíma í fyrra var heildarbotnfiskaflinn 3.976 tonn.

Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér.

Brosme_brosme

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner5
Þetta vefsvæði byggir á Eplica