Tæp 95% síldaraflans úr norsk-íslenska stofninum veiddur innan lögsögu
Veiðar á norsk-íslenskri síld héldu áfram að nokkrum krafti í nýliðnum september mánuði. Alls var landað 31.787 tonn og er heildaraflinn nú orðinn 218.078 tonn. Íslensk skip hafa veitt stærstan hluta af síldaraflanum eða 207.024 tonn innan íslenskrar lögsögu eða 95%. Þetta er mun hærra hlutfall en síðastliðin ár. Í fyrra veiddust 59% síldaraflans í lögsögunni og 59% árið 2007.
Með síldveiðunum fékkst 4.140 tonna makrílafli og kolmunnaaflinn var 1.527 tonn. Heildarmakrílafli á yfirstandandi ári er nú kominn upp í 115.525 tonn en á sama tíma í fyrra var hann 112.353 tonn.
Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.

