Fréttir

Mælingar á brottkasti botnfiska 2008

14.10.2009

Grein

Hafrannsóknastofnun hefur gefið út skýrslu um mælingar á brottkasti botnfiska 2008. Skýrsluna í heild sinni er hægt að nálgast hér. Niðurstöður mælinga á brottkasti árið 2008 sýna að brottkast á þorski er 0,79% af lönduðum afla, er það þriðja lægsta hlutfall brottkasts á tímabilinu 2001-2008. Brottkast ýsu var 1,93% og er það næst lægsta hlutfall brottkasts á ýsu á framangreindu tímabili. Nánari niðurstöður og niðurstöður eftir veiðarfærum er að finna í skýrslunni.

Eftirlitsmenn Fiskistofa taka þátt í brottkastverkefni Hafrannsóknarstofnunar með því að lengdarmæla fisk út á sjó annars vegar og í landi hins vegar og senda gögnin til Hafrannsóknarstofnunnar. Sérfræðingar þar annast síðan samanburð og útreikninga á grundvelli þessara lengdarmælinga og meta brottkast út frá því.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica