Fréttir

Afli og nýting aflaheimilda í september 2009

16.10.2009

Heildarafli íslenskra skipa í september mánuði var 77.389 tonn. Þetta er nokkuð meiri afli en á sama tíma í fyrra þegar aflinn var 66.937 tonn. Botnfiskaflinn var 38.407 tonn sem er sömuleiðis meiri afli en á sama tíma í fyrra þegar aflinn var 33.328 tonn.

Mest var um þorsk í september aflanum 13.779 tonn og ýsuaflinn var 6.454 tonn. Íslensk skip hafa á fyrsta mánuði fiskveiðiársins nýtt 9,2% af leyfilegum heildarafla í þorski og 10,2% í ýsu. Á sama tíma í fyrra var nýtingarhlutfallið í þorski 6,4% og ýsu 8,7%. Þess má þó geta að upphafsúthlutun í þorski var á síðasta fiskveiðiári

samanburdur_afli_200809

130.000 tonn sem kann að skýra minna nýtingarhlutfall í fyrra en nú.

Uppsjávaraflinn var einnig meiri í september mánuði en á sama tíma í fyrra. Aflinn var 38.084 tonn en 33.202 tonn í september í fyrra. Aukning í afla á norsk-íslenskri síld er helsta skýringin á aflaaukningunni í uppsjávaraflanum.

Afli í skel- og krabbadýrum var meiri í september sl. en á sama tíma í fyrra. Humaraflinn var 248 tonn samanborið við 154 tonn í fyrra. Aflaaukningin í úthhafsrækju var öllu meiri eða 232 tonnum í fyrra en  638 tonn í síðasta mánuði.  

Frekar upplýsingar um afla og nýtingu aflaheimilda í ágúst er að finna á meðfylgjandi síðu.


Atlantic_cod

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Tungumál síðu



banner4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.