Fréttir

Verðþróun aflamarks/krókaaflamarks í þorski

22.10.2009

Meðfylgjandi mynd sýnir verðþróun í aflamarki og krókaaflamarki í þorski á tímabilinu 1. janúar 2005 - 20. október 2009 (ef smellt er á myndina þá birtist hún stærri). Miðað er við hæstu verð hvern dag í viðskiptum með aflamark/krókaaflamark sem flutt er milli óskyldra aðila. Reynslan kennir að hæstu dagverðin lýsa verðþróuninni best.

verdthroun_cod_2009

Undanfarið ár hafa verið miklar sveiflur á verði á afla- og krókaaflamarki í þorski. Eftir stöðugt verð í aflamarki þar sem það hélst í kringum 250 kr/kg í um ár á fiskveiðiárinu 2007/08 varð mikil verðlækkun í kjölfarið á bankahruninu síðastliðið haust og fór verð á á aflamarki niður í 160 kr/kg. Verð á krókaaflamarki sveiflaðist á sama hátt en meiri sveiflur hafa þó einkennt krókaaflamarkið á undanförnum misserum.

Frá því snemma í vor hefur verð á aflamarki og krókaaflamarki hækkað mikið og nú um stundir er verð á aflamarki í þorski í hæstu hæðum eða í 270 kr/kg.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner6
Þetta vefsvæði byggir á Eplica