100 stærstu handhafar aflaheimilda - september 2009
Fiskistofa hefur eftirlit með að yfirráð einstakra aðila yfir aflahlutdeildum fari ekki umfram tiltekin lögákveðin mörk
Í meðfylgjandi skjölum kemur fram staða aflaheimilda 100 útgerða sem ráða yfir mestum aflahlutdeildum samkvæmt gögnum Fiskistofu sem og sambærilegar upplýsingar varðandi þær 50 útgerðir sem ráða yfir mestum krókaaflahlutdeildum.Útreikningur til þorskígilda miðast við allar tegundir aðrar en þær sem alfarið veiðast utan íslenskrar lögsögu en eru þó kvótabundnar, þ.e. þorskur í Barentshafi og rækja á Flæmingjagrunni.
Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða má heildar aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga og lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki fara yfir 12% af samanlögðu heildarverðmæti aflahlutdeilda allra tegunda og heildarkrókaaflahlutdeild ekki yfir 5% af samanlögðu heildarverðmæti krókaaflahlutdeilda.
Þá má aflahlutdeild einstaks eða tengdra aðila í þorski ekki fara yfir 12% af heildaraflahlutdeild, í ýsu, ufsa, grálúðu, steinbít, síld, loðnu og úthafsrækjurækju ekki yfir 20% og í karfa ekki yfir 35%. Heildarkrókaaflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila eða tengdra aðila má ekki fara yfir 4% í þorski og 5% í ýsu.
Samkvæmt gögnum Fiskistofu fer enginn einstakur aðili yfir sett hámark í heildaraflahlutdeild né yfir sett mörk í einstökum tegundum en lítilsháttar breytingar hafa orðið í röðun 10 stærstu fyrirtækjanna frá síðustu úttekt. Fiskistofa kannar einnig tengsl þeirra fyrirtækja sem hafa yfir mestum aflahlutdeildum að ráða og þá hvort að samanlögð hlutdeild tengdra aðila fari yfir tilsett mörk. Unnið er að þeirri athugun nú.
Einn aðili er yfir mörkum í heildarkrókaaflahlutdeild, þrír eru yfir mörkum í krókaaflahlutdeild í þorski en tveir í ýsu. Samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, var þeim aðilum sem voru fyrir yfir þessu hámarki gefinn frestur til 1. september 2009 til að gera ráðstafanir til að hlutdeildir þeirra rúmuðust innan settra marka. Með lögum nr. 11/2009 um breytingu á þeim lögum var þessi frestur lengdur til 01. september 2010 og fellur einn fyrrnefndra aðila undir þann aukna frest.
Þeim sem vilja kynna sér frekar reglur um hámarksaflahlutdeildir er bent á ákvæði 13. og 14. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum

