Fréttir

Verðþróun aflamarks/krókaaflamarks í ýsu

30.10.2009

Meðfylgjandi línurit sýnir verðþróun í aflamarki og krókaaflamarki í ýsu á tímabilinu 1. janúar 2005 - 30. október 2009 (ef smellt er á myndina þá birtist hún stærri). Miðað er við hæstu verð hvern dag í viðskiptum með aflamark/krókaaflamark sem flutt er milli óskyldra aðila. Reynslan kennir að hæstu dagverðin lýsa verðþróuninni best.

verdthroun_ysa_2009

Á tímabilinu frá árinu 2005 og til haustmánaða var verð í báðum fiskveiðistjórnunarkerfunum mjög stöðugt í kringum 50 kr/kg. Hltutirnir fóru að breytast með afgerandi hætti á vormánuðum 2009 þegar verðið tók að hækka og sérstaklega varð skörp verðhækkun sl. haust. Verðið er nú komið upp í rúmlega 200 kr/kg sem er rúmlega 400% hækkun frá því sem var á tímabilnu 2005-2008. Stöplaritið hér að neðan sýnir magnið sem var leigt á milli óskyldra aðila. Þar sést að framboðið hefur minnkað.

magn_millifaersla_ysa_2009

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Tungumál síðu



banner3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.