Fréttir
Frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið birti í gær fréttatilkynningu um frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða. Í fréttatilkynningu kemur fram að helstu breytingar á lögunum séu eftirfarandi:
- Heimilað verði að stunda veiðar í atvinnuskyni á sama tímabili og frístundaveiðar eru stundaðar.
- Dregið verði úr heimild til að flytja aflamark milli fiskveiðiára úr 33% í 15%, en sérstaklega kveðið á um í bráðabirgðaákvæði að á þessu fiskveiðistjórnunarári verði heimildin 10%.
- Línuívilnun aukin.
- Heimild til að kveða á um vinnsluskyldu á uppsjávarfiski.
- Svokölluð veiðiskylda aukin en í því sambandi tekið tillit til veiða utan lögsögu úr stofnum sem ekki teljast til deilistofna.
- Heimild til flutnings aflamarks frá skipi takmörkuð. Bráðabirgðaákvæði er lýtur að veiðistjórnun á skötusel og gjaldtöku fyrir úthlutun aflamarks í þeirri tegund.
- Skipting leyfilegs heildarafla í karfa.
Fréttatilkynninguna í heild sinni er að finna hér.

