Fréttir

Upphafskvóti í síld ákveðinn 40.000 tonn

12.11.2009

Ráðherra hefur gefið út reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld og er upphafskvótinn 40.000 tonn, sem þýðir að 25.000 tonnum var úthlutað til skipa í dag 12. nóvember 2009. Er það til viðbótar þeim 15.000 tonnum sem voru gefin út 16. október 2009.

Ennfremur hefur ráðherra ákveðið að reglugerð um nýtingu afla og aukaafurða verði breytt á þann hátt að skylt sé að færa allan afskurð sem fellur til við vinnslu síldarinnar um borð í fullvinnsluskipum í land.

Einnig verður gerð breyting á reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld þar sem heimild til að sleppa niður lifandi síld í nót er aftukölluð.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner1
Þetta vefsvæði byggir á Eplica