Fréttir

Íslensk skip veiddu rúm 11 þúsund tonn af síld í norskri lögsögu í október

13.11.2009

Íslensk skip hófu veiðar á norsk-íslenskri síld í norskri lögsögu í október mánuði. Aflinn var 11.127 tonn. Íslensk skip veiddu einnig 12.035 tonn í síldarsmugunni. Veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum í norskri lögsögu hefjast nú aðeins síðar en í fyrra. Fyrsta aflanunum úr norskri lögsögu var þá landað þann 18. september en nú var fyrsta aflanum landað þann 13. október s.l. eða tæpum

Sild

mánuði síðar.

Á þessu ári var íslenskum skipum úthlutað 44.362 tonnum af síld úr norskri lögsögu sem er rúmlega 8% meiri afli en í fyrra, þá var íslenskum skipum úthlutað 40.990 tonn.

Afli úr öðrum úthafstegundum var sáralítill og fékkst sem meðafli með síldveiðunum. Meðal annars fengust 15 tonn af makríl og 81 tonn af kolmunna í síldarsmugunni. Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica