Veiðar erlendra skipa í íslenskri lögsögu aflinn í október 2009
Alls voru níu færeysk línuskip að veiðum í íslenskri lögsögu í október mánuði. Heildarafli þeirra var 578 tonn. Mest var um keilu í aflanum eða 212 tonn og þorskaflinn var 147 tonn.
Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa það sem af er árinu eru nú 3.257 tonn. Á sama tíma í fyrra voru færeysk skip hins vegar búin að veiða 3.863 tonn. Þorskaflinn er kominn í 677 tonn en heimild færeyskra skipa á árinu er 1.200 tonn. Færeyingarnir hafa því nýtt 56,4% af aflaheimildunum sínum í þorski í íslenskri lögsögu
Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér

