Fréttir
Stjórn makrílveiða 2010
Reglugerð um stjórn makrílveiða Íslendinga árið 2010
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út reglugerð nr. 939/2009 939/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. Reglugerðin tekur til veiða í íslenskri lögsögu sem og á alþjóðlegu hafsvæði. Í reglugerðinni segir að fari heildarafli íslenskra skipa í makríl á árinu 2010 yfir 130.000 lestir, eða 20.000 lestir á samningssvæði Norðaustur-Atlantashafsfiskveiðinefndarinnar NEAFC, utan lögsögu ríkja, ákveður ráðherra hvort veiðar á makríl skuli bannaðar eða takmarkaðar með einhverjum hætti.

