Samkomulag við ESB (IUU)
Samkomulag hefur verið undirritað við ESB vegna veiðivottorða og aðgerða gegn ólöglegum veiðum
Undirritað hefur verið samkomulag milli Íslands og ESB um framkvæmd á reglugerð (EC) nr. 1005/2008 1005/2008 1005/2008 1005/2008 , markmið hennar er að leitast við að koma í veg fyrir innflutning sjávarafurða sem eiga uppruna sinn í ólöglegum veiðum (IUU fishing). Samkvæmt reglugerðinni þarf m.a. frá 1. janúar 2010 að fylgja veiðivottorð með öllum íslenskum sjávarafurðum sem fluttar eru inn á markaðssvæði Evrópusambandsins. Með samkomulaginu fær Ísland undanþágu frá því veiðivottorði sem sett er fram í tilgreindri reglugerð og skilar í stað þess einfaldara íslensku vottorði.
Með tilkomu þessa vottorðs er nauðsynlegt að framleiðendur fiskafurða haldi saman upplýsingum um það úr hvaða skipum og af hvaða löndunardagsetningum er verið að vinna afla hverju sinni. Útflytjendur munu á grundvelli þessara upplýsinga fylla út veiðivottorð sem afgreidd verða rafrænt á Fiskistofu.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið mun á næstu dögum boða til kynningarfundar um samkomulagið, tilkomu þess og útfærslu atriði. Fiskistofa mun þar kynna veiðivottorðin og kerfið í kringum þau.
Samkomulag Íslands og Evrópusambandsins er að finna hér. Nánari upplýsingar um reglugerðina og innleiðingu hennar hjá Evrópusambandinu er að finna á hér.

