Fréttir
Aðgangur að veiðivottorðakerfi
Í framhaldi af kynningarfundi um veiðivottorð sem haldinn var í morgun þá er hægt að sækja um aðgang að veiðivottorðakerfinu til Fiskistofu. Umsóknir skulu sendar til Elínbjargar Ingólfsdóttur á netfangið elinbj@fiskistofa.is. Kynningin frá því í morgun og frekari upplýsingar verða settar á vef Fiskistofu í dag og á mánudaginn.
Umsókninni til Elínbjargar þurfa að fylgja upplýsingar um nafn fyrirtækis, heimilisfang, kenntölu, netfang og símanúmer.

