Fréttir
Úthafsaflinn í nóvember
Íslensk skip langt kominn með nýtingu á aflaheimildum í norskri lögsögu
Íslensk skip héldu áfram veiðum á norsk-íslenskri síld í norskri lögsögu í nóvember mánuði. Aflinn var 16.962 tonn og hafa íslensk skip því veitt það sem af er ári 29.295 tonn í norskri lögsögu. Íslenskum skipum var úthlutað fyrir yfirstandandi ár 44.362 tonn í norskri lögsögu og hafa því nýtt rúm 66% af aflaheimildum þar.
Afli úr öðrum úthafstegundum var sáralítill og fékkst sem meðafli á veiðum innan
íslenskrar lögsögu. Meðal annars fengust 95 tonn af makríl og 9 tonn af kolmunna.
Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.

