Veiðar erlendra skipa
Veiðar erlendra skipa í íslenskri lögsögu aflinn í nóvember 2009
Alls voru sjö færeysk skip að veiðum innan lögsögunnar í nóvember sl. Heildarafli skipanna var 387 tonn. Mest var um keilu í aflanum eða 117 tonn, ýsuaflinn var 80 tonn og þorskaflinn var 78 tonn samkvæmt löndunartölum.
Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa það sem af er árinu er nú 3.644 tonn. Þorskaflinn er kominn í 755 tonn en heimild færeyskra skipa á árinu er 1.200 tonn. Færeyingarnir hafa því nýtt 62,9% af aflaheimildunum sínum í þorski í íslenskri lögsögu. Fyrstu ellefu mánuði 2008 var þorskafli færeyskra skipa innan landhelgi öllu meiri en nú eða 883 tonn. Aflaheimildirnar voru þá sömuleiðis 1.200 tonn en heildaraflinn allt árið í fyrra var 917 tonn. Það bendir því allt til þess að færeysk skip muni ekki fullnýta veiðiheimildir sínar í þorski líkt og í fyrra.
Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér

