Fréttir
Skipting þorskafla eftir veiðarfærum
Skipting þorskafla eftir veiðarfærum 1979 til 2009
Í þessari töflu má sjá þorskafla íslenskra skipa á árunum 1979 til 2008. Það sem helst vekur athygli varðandi breytingar á veiðarfæraskiptingu þorskaflans er vaxandi vægi línu. Þannig hefur hlutfall línunnar í þorskafla vaxið úr tæpum 10% árið 1979 í 32,5% á yfirstandandi ári (hlutfallið var hins vegar rúm 37% á árinu 2008).
Hinsvegar hefur hlutur neta á sama tíma fallið úr þriðjungi í rúmlega 11% og botnvörpu úr tæpum 55% í rúm 44%. Hlutdeild dragnótar í þorskafla hefur vaxið umtalsvert og hlutfallslega mest eða úr 04% á´arinu 1979 til 5,4% á yfirstandandi ári.
Hlutfall þorskaflans sem veiddur var á handfæri var 4,0% á árinu 1979 sem er sama hlutfall og er á yfirstandandi ári. Vægi handfæra jókst verulega með uppgangi smábátaflotans og náði hámarki, tæpum 12% af þorskafla íslenskra skipa, á árinu 1997. Þegar krókabátarnir fóru undir krókaaflamark þá minnkaði hlutur handfæranna á kostnað línu, en krókabátarnir hafa síðan þá nýtt í vaxandi mæli mun afkastameira veiðarfæri, sem er línan, til að veiða aflaheimildir sínar.


