Fréttir

Vörur sem ekki þurfa veiðivottorð

30.12.2009

Mikið er spurt um þá tollaflokka sem eru undanskildir veiðivottorðum. Í viðauka VIII í innleiðingarreglugerð ESB er að finna nákvæman lista yfir þá tollflokka sem ekki þarf veiðivottorð fyrir. Reglugerðina er að finna hér, viðauki VIII er á blaðsíðu 40 (merkt Annex VIII 280/40). Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur fengið upplýsingar um að fleiri tollflokkar séu til athugunar með það að ljósi að undanskilja þá veiðivottorðum. Engar breytingar hafa þó verið gerðar á innleiðingarreglugerð ESB og skv. upplýsingum sem hafa borist verða þær ekki gerðar fyrr en í janúar. Fram að því þurfa veiðivottorð að fylgja öllum öðrum tollaflokkum fyrir sjávarafurðir en þeim sem getið er í fyrrgreindum viðauka VIII.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Tungumál síðu



banner1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.