Fréttir
Úthafsveiðar
Úthafsveiðar - aflinn í desember 2009
Íslensk skip veiddu í desember mánuði alls 7.243 tonn af síld úr norsk-íslenska síldarstofninum. Þessi afli var að mestu fenginn úr
norskri lögsögu eða 6.651 tonn og 592 tonn úr færeyskri lögsögu.
Á síðasta ári veiddu íslensk skip 265.480 tonn úr stofninum og er þetta mesti afli úr norsk-íslenska stofninum síðan seint á 7. áratug síðustu aldar, á árum sem kölluð eru síldarárin. Íslensk skip veiddu alls 35.946 tonn úr norskri lögsögu. Íslenskum skipum var úthlutað fyrir árið 2009 alls 44.362 tonn í norskri lögsögu og nýttu því rúm 81% af aflaheimildum þar.
Myndin hér til hliðar sýndir árlegan afla úr norsk-íslenska síldarstofninum frá 1994.
Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.


