Fréttir
Veiðar erlendra skipa
Færeysk skip nýttu ekki aflaheimildir sínar í botnfiski í íslenskri lögsögu í fyrra
Rólegt var yfir veiðum færeyskra togara innan íslensku lögsögunnar í desember mánuði. Þrjú línuskip voru að veiðum og nam heildarafli þeirra 157 tonn. Mest var um ýsu í aflanum eða 61 tonn.
Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa á árinu 2009 var 3.827 tonn sem eru rúm 68% af leyfilegum heildarbotnfiskafla þeirra í íslenskri lögsögu sem var 5.600 tonn. Á sama tíma í fyrra var heildarbotnfiskaflinn hins vegar 3.976 tonn
Þorskafli færeyskra skipa í desember var 42 tonn og veiddu þau á nýliðnu ári 816 tonn af þorski en heimild færeyskra skipa á árinu voru 1.200 tonn. Færeyingarnir nýttu því einungis 68% af aflaheimildunum sínum í þorski í íslenskri lögsögu. Færeysk skip höfðu heimildir til að veiða 45 tonn af lúðu innan lögsögunnar og var heildarafli þeirra tæplega 41 tonn.
Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér.

