Fréttir

Úthlutun loðnukvóta

3.2.2010

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur með reglugerð gefið út aflamark í loðnu, samtals 130.000 lestir, á tímabilinu 30. janúar 2010 til 30 apríl 2010. Í hlut íslenskra skipa koma 90.779 lestir. Norskum skipum er heimilt að veiða 28.431 lest, færeyskum skipum 6.500 lestir og grænlenskum skipum er heimilt að veiða 4.290 lestir. Fiskistofa hefur úthlutað aflamarkinu til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Tungumál síðu



banner5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.