Fréttir
Loðnuveiðar norskra skipa
Norðmenn eru nú hættir loðnuveiðum við Ísland. Alls voru 31 skip sem stunduðu veiðarnar og var heildarafli þeirra, sem tilkynntur var til Landhelgisgæslunnar 27.745 tonn. Aflamarkið sem kom í hlut norskra skipa var hins vegar 28.431 tonn.


