Fréttir

Eftirlit með norskum loðnuskipum

18.2.2010

Eins og kunnugt er voru norsk loðnuskip við veiðar á Íslandsmiðum í byrjun febrúar og veiddu upp kvóta sinn á nokkrum dögum. Hluti skipanna landaði afla sínum hér á landi og hafði Fiskistofa eftirlit með löndunum flestra skipanna, vigtun og skráningu afla, skoðaði veiðileyfi og bar saman skráningar í afladagbækur og löndunartölur. Verður Fiskistofunni í Noregi send skýrsla um niðurstöður eftirlitsins. Enginn meðafli reyndist vera í loðnunni.

Fiskistofa óskaði einnig eftir því, á grundvelli gildandi samnings milli Íslands og Noregs, að Fiskistofan í Noregi hefði eftirlit með löndunum skipa sem veiddu afla sinn á Íslandsmiðum. Var þeirri ósk vel tekið og bíður Fiskistofa nú skýrslu frá systurstofnun sinni í Noregi um eftirlit þeirra.

Mallotus_villosus



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner6
Þetta vefsvæði byggir á Eplica