Fréttir

Uppsjávarfiskur eftir höfnum

1.3.2010

Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um landað magn af uppsjávarfiski eftir höfnum og landsvæðum frá 1993 til 2009. Uppsjávarafli hefur á tímabilinu minnkað um 45%. Töflurnar má sjá hér.

Í fyrra var mestum uppsjávarafla landað á Neskaupsstað eða 173.440 tonnum. Næst mestum afla var landað í Vestmannaeyjum eða 91.402 tonnum og því næst á Vopnafirði, 66.422 tonnum.                      

Þrátt fyrir að Neskaupsstaður beri höfuð og herðar yfir aðrar hafnir á landinu þegar kemur að lönduðu magni af uppsjávarfisk á síðasta ári þá hefur oft verið landað meiri uppsjávarfisk þar. Meðal annars var þar landað 243 þúsund tonnum árið 2003 en það er mesta magn sem landað hefur verið í einni höfn á einu ári á ofangreindu tímabili.   hlutfallslegt_magn_uppsjavarafla_austfj

Ef horft er til tímabilsins frá 1993 til síðasta árs þá sést glögglega að á sumum höfnum var hér áður fyrr miklu magni landað af uppsjávarfisk en hin síðari ár hafa landanir lagst af.  Meðal þeirra hafna má helst nefna Siglufjörð.  Á árinu 1993 var 136 þúsund tonnum af uppsjávar-afla landað þar en síðan 2006 hefur enginn  uppsjávarafli  komið þangað á land. Þess má geta að á síldarárunum uppúr miðri síðustu öld var Siglufjörður helsta löndunarhöfn landsins í síld.

Landanir á uppsjávarfiski hafa einnig lagst af á nokkrum öðrum stöðum á landinu m.a. í Bolungarvík sem á árum áður var helsta löndunarhöfn fyrir uppsjávarfisk á Vestfjörðum en á síðasta ári var nánast engum upssjávarafla landaði þar. Sömuleiðis hefur nánast enginn uppsjávarafli komið á landi í  Reykjavík, á Akureyri og í Raufarhöfn en Raufarhöfn var ein af helstu löndunarhöfnunum á síldarárunum.

Sé athyglinni beint að landsvæðum þá hefur verið sú tilhneiging undanfarin ár að landanir á uppsjávarafla hafi færst í auknum mæli til Austfjarða. Árið 1993 var 42% af öllum uppsjávarafla landað fyrir austan en hlutfallið hefur síðan vaxið nokkuð jafnt og þétt og í fyrra var það komið uppí rúm 71% (sjá mynd). Hlutfallsleg aukning hefur einnig orðið á Suðurlandi. Hlutfall landaðs uppsjávarafla hefur á öðrum landsvæðum minnkað á tímabilinu, mest á Norðurlandi eystra, um 20%.  



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner1
Þetta vefsvæði byggir á Eplica