Ólögmætar framkvæmdir við veiðiár
Með hækkandi sól fer í hönd sá tími þegar bæjarfélög, verktakar og landeigendur fara að sinna margvíslegum verklegum framkvæmdum. Aukið malarnám er fylgifiskur margra slíkra framkvæmda, einkum vegna vegagerðar og húsbygginga. Í því ljósi er tímabært að minna á lög og reglur, sem gilda um malarnám í nágrenni við ár og vötn.
Framkvæmdir eru leyfisskyldar
Í fræðslugrein, sem birtist í Morgunblaðinu í ágúst 2009, var rætt um skyldu landeigenda og framkvæmdaaðila til að afla sér heimildar Fiskistofu, ef menn hyggðu á einhverjar framkvæmdir við veiðiár eða stöðuvötn, svo sem malartekju, bakkavarnir, farvegsbreytingar eða gerð veiðistaða, sleppitjarna og laxastiga. Áður en lagt er í slíkar framkvæmdir þurfa aðilar að afla sér umsagnar sérfræðings í veiðimálum og starfandi veiðifélags við ána og sækja um heimild til Fiskistofu vegna framkvæmdarinnar á sérstöku eyðublaði, sem finna má á heimasíðu Fiskistofu undir lax- og silungsveiðisvið. Gildir þá einu, hvort umræddur framkvæmdaaðili er landeigandi á viðkomandi svæði eða ekki.
Hert viðurlög vegna brota
Núgildandi ákvæði um framkvæmdir við ár og vötn er að finna í 33. greina laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði, sem að hluta byggðu á ákvæðum eldri laga. Hinsvegar láðist að tilgreina viðulög vegna brota, sem snertu framkvæmdir við ár og vötn, við setningu laganna sumarið 2006. Því hefur verið lítið kært út af slíkum málum undanfarin ár. Úr þessu var bætt með lagabreytingu í árslok 2009, sem útvíkkaði viðurlagaheimildir lax- og silungsveiðilaganna til slíkra brota. Í kjölfarið má gera ráð fyrir að kærum í slíkum málum fjölgi og þeir sem brotlegir gerast verði í vaxandi mæli látnir sæta lagalegri ábyrgð.
Malartekja getur verið skaðleg
Megintilgangur núgildandi laga er ekki að stöðva að öllu leyti malartekju við ár enda eru margar ár mjög afkastamiklar við það að bera fram möl og geta í kjölfarið valdið landbroti. Hinsvegar þarf að gæta að því að slíkt efnisnám skemmi ekki búsvæði fiska eða aðstöðu til veiði, sem gerir þá kröfu að faglega sé að málum staðið. Sama gildir um farvegsbreytingar og lagfæringar á veiðstöðum, sem einnig eru leyfisskyldar og þurfa að vera unnar í samráði við veiðifélagið um viðkomandi á eða stöðuvatn.
Útboðsaðilar geta verið ábyrgir
Fiskistofa hvetur alla verktaka, framkvæmda- og byggingaaðila að huga að því hvort fyrir liggi lögboðnar heimildir vegna þeirra malartekju, sem fyrirhuguð er á komandi sumri vegna byggingaframkvæmda og vegagerðar. Sérstaklega er vert að vekja athygli á því að þeir, sem boðið hafa út framkvæmdir til undirverktaka, geta þegar upp er staðið verið lagalega ábyrgir vegna ólögmætrar efnistöku og annarra framkvæmda við veiðiár.

