Fréttir
Úthafsveiðar
Aflinn í mars 2010
Íslensk skip voru við veiðar á kolmunna á alþjóðlegu hafsvæði suður af Færeyjum í mars mánuði. Heildaraflinn var 10.290 tonn. Fyrstu þrjá mánuði ársins hafa íslensk skip veitt 15.690 tonn sem er nokkuð minni afli en á sama tíma í fyrra þegar hann var kominn í 52.536 tonn.
Engar veiðar voru stundaðar á öðrum deilitegundum. Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.

