Fréttir

Nýtt á vefnum varðandi útflutning

Samanburður á lágmarksverði og söluverði erlendis á óvigtuðum afla

21.4.2010

Allan afla sem flytja á til endanlegrar vigtunar og sölu á viðurkenndum uppboðsmarkaði erlendis þarf áður að bjóða upp á s.k. Fjölneti Reiknistofu fiskmarkaðanna. Þar setja seljendur afla fram ósk um ákveðið lágmarksverð. Á þessari síðu á vef Fiskistofu er nú hægt að sækja samanburð eftir fisktegundum á því meðal lágmarksverði sem óskað er á Fjölnetinu við það meðalsöluverð sem fékkst fyrir sama afla við sölu erlendis. Dagsetning miðar við dagsetningu á sölu erlendis.

Nokkrar breytingar hafa að auki verið gerðar á skráningarformi útflytjenda þar sem sett er inn áætlun vegna útflutnings. Í stað þess að skrá sérstaklega inn á vef Fiskistofu tilkynningu um útflutning og hringja til fiskmarkaðanna upplýsingar um aflann og umbeðið lágmarksverð er nú ein tilkynning. Því er sú viðbót í skráningu inn til Fiskistofu að skrá þarf stærðarflokka aflans, upplýsingar um umbeðið lágmarksverð og þann fiskmarkað sem óskað er að sjái um sölu aflans ef til hennar kemur. Nokkurrar óánægju hefur orðið vart með stærðarflokkunina. Þeir stærðarflokkar sem í boði eru, eru sambærilegir við skráningarkerfi fiskmarkaðanna og fengnir þaðan. Vert er að benda á að sé aflinn ekki flokkaður og því erfitt að velja viðeigandi stærðarflokka er hægt að sleppa því að haka við stærðarflokk. Þá birtist skráningin sem blandaður afli. Það eru tilmæli frá fiskmörkuðunum að skrá aflann frekar sem blandaðan en að velja stærðarflokka sem ekki eru að fullu ljósir og standast ekki.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner5
Þetta vefsvæði byggir á Eplica