Umsóknir um strandveiðileyfi
Reglugerð um strandveiðar hefur verið birt, hana má finna hér.Fiskistofa tekur nú rafrænt á móti umsóknum um strandveiðileyfi hér. Umsóknir verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og seinna í dag verður hægt að skoða stöðu í afgreiðslu umsóknar á vef Fiskistofu. Ekki verður hægt að veita frekari upplýsingar um stöðu umsókna en birtast á vefnum í síma en þeir sem lenda í vandræðum með umsóknirnar eru hvattir til að hringja til Fiskistofu og fá leiðbeiningar og aðstoð. Afgreiðsla leyfis getur tekið nokkra daga og sérstök athygli er vakin á því að veiðileyfin taka ekki gildi fyrr en greitt hefur verið fyrir þau og ekki er heimilt að hefja veiðar fyrr en 10. maí. Nánari upplýsingar um strandveiðar má finna hér á vef Fiskistofu.

