Fréttir

Afgreiðsluferli umsókna um strandveiðileyfi

4.5.2010

Hér er hægt að fylgjast með stöðu í afgreiðslu strandveiðileyfa til einstakra báta og sjá lista yfir þau leyfi til strandveiða sem þegar hafa verið gefin út. Ferill í afgreiðslu umsókna er eftirfarandi:

  • Sótt hefur verið um leyfi - staða umsóknar í kerfinu er ný umsókn
  • Vinnsla við afgreiðslu umsóknarinnar er hafin, verið að kanna bakgrunnsbreytur - staða umsóknar í kerfinu er í vinnslu
  • Vinnslu lokið og veiðileyfi samþykkt - staða umsóknar í kerfinu er greiðsluseill sendur.  Vinsamlegast athugið að fyrst hérna verður til greiðsluseðill, að kvöldi dags sem greiðsluseðill verður til birtist hann í heimabanka viðkomandi greiðanda. Greiðsluseðlar eru jafnframt sendir í  pósti.
  • Veiðileyfi er greitt - staða umsóknar kerfinu er samþykkt og viðkomandi heimilt að hefja veiðar á þeirri dagsetningu  sem leyfið gildir frá. Veiðileyfin eru send í pósti.

Í lista yfir útgefin leyfi til strandveiðibáta eru eingöngu bátar sem veiðileyfi hefur verið greitt fyrir.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner5
Þetta vefsvæði byggir á Eplica