331 umsókn um strandveiðileyfi hafa borist Fiskistofu
Í gærmorgun hófst móttaka umsókna um strandveiðileyfi hjá Fiskistofu. Á þessum fyrsta sólarhring hafa stofnuninni borist 331 umsóknir um strandveiðileyfi. Mjög misjafnlega er sótt í veiðisvæðin, 179 umsóknir hafa borist á svæði A, 26 á svæði B, 54 á svæði C og 72 á svæði D. Úrvinnslu 66 umsókna lauk í gær og verða leyfin gefin út þegar að greitt hefur verið fyrir þau. Reynt er að afgreiða allar umsóknir eins hratt og auðið er og má vænta þess að greiðsluseðlar vegna þeirra umsókna sem þegar hafa borist og standast skoðun verði gefnir út innan sólarhrings. Komi upp vandamál varðandi skráningu skips, haffæri, heimilisfesti útgerðar eða þess háttar tekur afgreiðsla leyfis lengri tíma.
Fiskistofa vill vekja sérstaka athygli á því að afgreiðsluferli umsókna getur tekið nokkra daga og að veiðileyfin taka ekki gildi fyrr en að greitt hefur verið fyrir þau. Stofnunin hvetur því þá sem ætla sér á veiðar fyrstu daga strandveiðitímabilsins að drífa í að sækja um. Ekki er heimilt að hefja veiðar fyrr en 10. maí n.k.

