Fréttir

Undantekning frá kröfu um strandveiðileyfi um borð

6.5.2010

Í ljósi sérstakra aðstæðna sem skapast vegna greiðslu á strandveiðileyfum getur Fiskistofa ekki ábyrgst að allir þeir sem greitt hafa fyrir strandveiðileyfi sín fyrir helgi verði komnir með þau í hendur á mánudag þegar veiðar mega hefjast. Því verður ekki gerð krafa um veiðileyfi um borð fyrstu daga veiðanna. Ekki má halda til veiða nema að staða umsóknar fyrir skip í umsóknarkerfi Fiskistofu sé komin á samþykkt, sjá hér og munu eftirlitsmenn Fiskistofu og LHG styðjast við þennan lista fyrstu daga veiða.

Ferlið er því þannig að eftir að greiðslutilkynning berst Fiskistofu er stöðu umsóknar breytt í “samþykkt” og veiðileyfi sett í póst. Þau munu því berast með pósti á næstu dögum og eru aðilar vinsamlegast beðnir um að bíða eftir leyfunum í pósti í stað þess að koma á Fiskistofu og sækja þau. Veiðileyfi verða ekki send í tölvupósti eða á faxi. Vinsamlegast athugið að umsóknarkerfið er uppfært nokkrum sinnum á dag, þannig að breytingin verður ekki strax að greiðslu lokinni en reynt er uppfæra allar breytingar sem verða innan dags fyrir lok dags. Fiskistofa vill vekja sérstaka athygli á því að staðfesting á greiðslu fyrir þau skip sem ætla sér til veiða á mánudagsmorgun verður að hafa borist stofnuninni fyrir kl. 16 á morgun, föstudag.

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner6
Þetta vefsvæði byggir á Eplica