Fréttir
Úthafsveiðar
Úthafsveiðar aflinn í apríl 2010
Nokkur kraftur var í kolmunnaveiðum íslenskra skipa í aprílmánuði. Alls voru tólf skip á veiðunum og fóru þær fram í færeyskri lögsögu. Skipin lönduðu alls 40.569 tonnum og það sem af er árinu hafa íslensk skip veitt 56.259 tonn af kolmunna. Á sama tíma í fyrra var aflinn orðinn tvöfalt meiri eða 113.024 tonn.
Aðeins fékkst af makríl sem meðafli við kolmunnaveiðarnar.
Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.

