Fréttir
Úthlutun í úthafskarfa
Úthafskarfaaflamarki 2010 hefur verið úthlutað
Samkvæmt reglugerð 208/2010 um veiðar úr úthafskarfastofnum 2010, var íslenskum skipum, sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu, heimilt að veiða 3.162 lestir af úthafskarfa fram til 11. maí. Eftir þann dag skyldi það magn aukið um 11.596 lestir. Þessu magni hefur nú verið úthlutað til skipa og hér má sjá aflamarksstöðu einstakra skipa eftir úthlutun.

