Fréttir

Eftirlit á grunnslóð

13.5.2010

Veiðieftirlitsmenn frá Fiskistofu í samstarfi við Landhelgisgæsluna voru við veiðieftirlit á grunnslóð dagana 3. til 12. maí s.l. Farið var um borð í 35 báta í ferðinni; 16 sem voru á grásleppuveiðum, 17 á handfæraveiðum, 1 á veiðum með þorskanetum og 1 skemmtibátur.

Athuganir sem veiðieftirlitsmenn gerðu leiddu til gerðar 16 brotaskýrslna og þar af einnar kæru til lögreglu og vísun báts til hafnar af LHG vegna veiða á ólöglegu svæði. Í flestum tilvikum var um að ræða brot á reglum um afladagbækur þar sem aðilar höfðu ekki fært rétt inn í bækurnar eða voru ekki með afladagbók um borð. Jafnframt var þó nokkuð um rangar merkingar á veiðafærum sem fólust í því að drekar voru ekki merktir eins og reglur segja til um. Gerðar voru lengdarmælingar á fiski sem allar komu vel út og allir bátarnir sem farið var um borð í voru með veiðileyfi um borð.

Það er mat starfsfólks Fiskistofu að þessi ferð, líkt og fyrri ferðir með LHG á mælingabátnum Baldri, hafi reynst vel og séu mikilvægur þáttur af fiskveiðieftirliti Fiskistofu.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica