Strandveiðar: Flestir róa á svæði A
Strandveiðar hófust mánudaginn 10. maí og er veiðum þessa vikuna lokið þar sem ekki er heimilt að róa föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Í dag, föstudaginn 14. maí, hefur Fiskistofa gefið út 407 leyfi til strandveiða og enn er töluvert af umsóknum í vinnslu. Það er mat starfsfólks Fiskistofu að þó svo að mikið hafi mætt á og viðskiptavinum stofnunarinnar snarfjölgað á rúmri viku þá hafi framkvæmd leyfisveitinganna og fyrstu dagar veiða almennt gengið vel.
Mest hefur verið sótt í leyfi á svæði A en þar hafa verið gefin út 172 leyfi, næst kemur svæði D þar sem gefin hafa verið út 122 leyfi. Hér á vef Fiskistofu má sjá nákvæmar upplýsingar um fjölda og skiptingu veiðileyfa.
Á þessari fyrstu viku héldu 321 bátur til veiða og alls voru 726 landanir. Endanlegri vigtun hefur ekki verið lokið í öllum tilvikum en um 430 tonn af afla strandveiðibáta hafa verið fullvigtuð. Eins og við var búast miðað við skiptingu leyfa fóru veiðar skarpast af stað á svæði A en þar var í vikunni 401 löndun og fullvigtuð hafa verið 267 tonn af 499 tonna heimild á svæðinu í maí mánuði. Veiðar á svæði A eru því rúmlega hálfnaðar. Afli strandveiðibáta er að mestu þorskur en tæpum 25 tonnum af ufsa hefur jafnframt verið landað auk minna magns í öðrum tegundum. Hér á vef Fiskistofu má fylgjast með afla í strandveiðum eftir svæðum.

