Fréttir

Verðþróun aflamarks/krókaaflamarks í þorski

18.5.2010

Meðfylgjandi mynd sýnir verðþróun á afla- og krókaaflamarki í þorski á tímabilinu 1. janúar 2005 til 18. maí 2010 (ef smellt er á myndina þá birtist hún stærri). Miðað er við hæstu verð hvern dag í viðskiptum með aflamark/krókaaflamark sem flutt er á milli óskyldra aðila. Reynslan sýnir að hæstu dagverðin lýsa verðþróuninni best.millifaerslur_dagverd_haestaverd_fiskveidiar

Undanfarið rúmt eitt og hálft ár hafa verið miklar sveiflur í verði á bæði afla- og krókaaflamarki í þorski. Eftir að verð á aflamarki hafði haldist stöðugt í kringum 250 kr/kg í um eitt ár, fiskveiðiárið 2007/2008, varð umtalsverð verðlækkun í kjölfar bankahrunsins haustið 2008, þar sem það fór niður í 160 kr/kg. Þrátt fyrir meiri sveiflur í krókaaflamarki fylgdi verðið niðursveiflunni í aflamarkskerfinu á þessu tímabili. Frá vormánuðum 2009 hóf verðið að rísa að nýju. Frá haustmánuðum í fyrra hefur það verið nokkuð stöðugt og er nú í sögulegu hámarki í rúmum 290 kr/kg, sem stafar óneitanlega af minna framboði á þorski.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica