Fréttir

Ráðstöfun aflaheimilda í makríl 2010

27.5.2010

Fiskistofa hefur ráðstafað aflaheimildum í makríl samkvæmt reglugerð nr. 285/2010, um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010, með síðari breytingum.

112.000 tonnum hefur verið skipt milli þeirra 29 skipa sem veiðireynslu hafa af makríl í flotvörpu og nót á árunum 2007, 2008 og 2009. Skiptinguna milli skipanna má sjá hér.

Alls sóttu 72 skip um leyfi til veiða á makríl með aflahámarki, og hér má sjá skiptingu þeirra 15.000 tonna sem þessum hópi eru ætluð.

44 skip hafa sótt um leyfi til makrílveiða á handfæri, línu og í gildrur, en til þessa hóps er ráðstafað 3.000 tonnum, en ekki er um að ræða aflahámark á hvert skip. Lista yfir þessi skip má finna hér.makrill_mynd

Greiðsluseðlar vegna veiðileyfa verða sendir út næstu daga vegna þeirra skipa sem uppfylla skilyrði til þess.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica